Þungaðar konur
Nokkur efni sem unnið er með á rannsóknastofu geta valdið fósturskaða. Þegar konu fer að gruna að hún sé ólétt ætti hún að láta yfirmann sinn vita. Fóstrið er viðkvæmast fyrir eituráhrifum á fyrsta þriðjungi meðgöngu og það er engin ástæða til að taka neina áhættu. Mikilvægt er að gera áhættumatið eins fljótt og kostur er og að konan sjálf taki þátt í gerð þess.
Yfirmaður ber ábyrgð á að áhættumat sé gert og því framfylgt.
Meðal þess sem á að taka afstöðu til er:
- Almennar vinnuaðstæður og vinnuvernd
- Vinna í erfiðum eða óþægilegum stellingum
- Erfiðisvinna af öllu tagi
- Efnafræðilegir þættir
- Efni með hættusetningar á bilinu H360-H370 eru sérstaklega varasöm
- H360 Getur haft skaðleg áhrif á frjósemi eða börn í móðurkviði.
- H360F Getur haft skaðleg áhrif á frjósemi.
- H360D Getur haft skaðleg áhrif á börn í móðurkviði.
- H360FD Getur haft skaðleg áhrif á frjósemi . Getur haft skaðleg áhrif á börn í móðurkviði.
- H360Fd Getur haft skaðleg áhrif á frjósemi . Grunur um að það geti haft skaðleg áhrif á börn í móðurkviði.
- H360Df Getur haft skaðleg áhrif á börn í móðurkviði. Grunur um að geti haft skaðleg áhrif á frjósemi.
- H361 Grunað um að hafa skaðleg áhrif á frjósemi eða börn í móðurkviði.
- H361f Grunað um að hafa skaðleg áhrif á frjósemi.
- H361d Grunað um að hafa skaðleg áhrif á börn í móðurkviði.
- H360Df Getur haft skaðleg áhrif á börn í móðurkviði . Grunað um að hafa skaðleg áhrif á frjósemi.
- H362 Getur skaðað börn á brjósti.
- Upplýsingar er að finna í SDS fyrir þau efni sem vinna skal með
- Efni með hættusetningar á bilinu H360-H370 eru sérstaklega varasöm
- Líffræðilegir þættir
- Vinna með smitandi bakteríur eða veirur
- Jónandi- og/eða rafsegulgeislun
Þungun er breytilegt ástand og áhættumatið þarf að taka mið af því.
Reglugerð 931/2000 og breytingar á henni: 453/2016:
Reglugerðin er sett með hliðsjón af tilskipun evrópusambandsins sem gildir á evrópska efnahagssvæðinu: Council Directive 92/85/EEC
Íslensk lög og reglur sem líka skipta máli:
- 46/1980, Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
- 95/2000, Lög um fæðingar- og foreldraorlof.
Athugið að það er litið á stúdenta sem vinna á rannsóknastofum, verkstæðum o.s.frv. sem starfsmenn og þeir njóta sömu réttinda samkvæmt vinnuverndarlögum.
Athugið: Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar sem Vinnueftirlitði gaf út árið 2001. Leiðbeiningarnar standa enn fyrir sínu að öðru leiti en því að flokkar hættusetninga hafa tekið breytingum síðan þessar leiðbeiningar voru gefnar út, nú eru hættusetningar á bilinu H360 – H370 fyrir efni sem eru sérstaklega varasöm fyrir börn í móðurkviði.